22.5.2012 | 13:50
Hverjir eru í framboði
Ég hef heyrt skrítnar raddir eins og: Er hann ekki búinn að vera nógu lengi? Þjóðarleiðtogi og sameiningartákn sem stendur sig vel er aldrei búinn að vera of lengi. Ekki eyðileggjum við góðan veg ef hann er ennþá góður þótt gamall sé!
Margir hinna frambjóðandanna eru einnig góðir valkostir. Ari Trausti, hann væri líklega mjög fínn í þetta starf. Þóra eflaust líka en hún má alveg bíða í svosum átta ár eða svo eða þar til hún hefur öðlast reynslu af lífinu.
Það er mikið rætt um að forsetinn eigi ekki að vera pólitískur. Ólafur var svo sannarlega pólitískur enda formaður stjórnmálaflokks en að mínu mati hefur hann sýnt það og sannað að hann er ekki að hygla einum flokki umfram annan. Hans pólítík er fólksins. Hann hefur t.a.m. notað neitunarvald sitt á móti fyrrverandi samflokksmönnum sínum sem sýnir okkur að honum er vel treystandi sem "ópólitískum" forseta sem fer eftir vilja fólksins í landinu.
Aðrir frambjóðendur eru einnig mjög frambærilegir en af hverju að skipta þegar við höfum þennan reynslubolta í alþjóðasamskiptum, mann sem hugsar um hag þjóðarinnar og vill halda vörð um hagsmuni fólksins í landinu.
Þóra, bíddu aðeins! og þið hin, Ólafur er ekki kominn á tíma.
|
Átta nýir árgangar kjósa forseta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
20.3.2012 | 22:31
Kapitalismi og lyfjafyrirtæki fara ekki saman
|
Verðum að draga úr ægivaldi lyfjaiðnaðarins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
6.1.2012 | 12:16
Hvar á að skera?
Þá tekur botninn úr að endurtengingar eftir ófrjósemisaðgerðir eru einnig fríar. Ef einstaklingur hefur einu sinni ákveðið að hætta að eignast börn þá er það í mínum huga eðlilegasti hlutur að greitt sé fyrir að láta tengja aftur þegar viðkomandi snýst hugur en það er ekki!
Það er eins í þessu og öllu öðru að í upphafi þegar ákveðið er að búa til velferðarkerfi þá er auðvitað bara hjálpað til þar sem það er nauðsynlegt en þegar góðæri brestur á, þá er hlaupið upp til handa og fóta og bætt við þjónustuna. En þegar síðan kreppir aftur að, þá er grunnstoðunum kippt undan og haldið áfram að styrkja prjálið. Því sem bætt var við í góðærinu á auðvitað að taka af í kreppunni. Sama gildir um allan ríkisreksturinn. Burt með allt prjálið þar, allar nýju ónýtu stofnanirnar og styrkið heldur grunninn betur!
|
Skora á ráðherra að draga breytingar til baka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.1.2012 kl. 17:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2012 | 11:57
Ekki sameinast
Lilja og Guðmundur Steingríms eru bæði góðir kostir en þau eru náttúrulega algerir andstæðingar þegar kemur að Evrópumálum. Held það sé mikill barnaskapur hjá Guðmundi að halda að við munum hagnast eitthvað á því að ganga í Evrópubandalagið. Það getur verið skjótur hagnaður en til lengri tíma litið munum við missa allt úr höndunum til Evrópskra auðjöfra og ekki er það betra en til þeirra íslensku. Að því sögðu þá finnst mér brýnast á dagskrá nú að tryggja það að aðeins Íslendingar geti eignast land og auðlindir landsins. Loka strax fyrir að aðrir Evrópubúar geti eignast þetta. Til að fyrirbyggja gamalt lénsskipulag er heldur ekki úr vegi að takmarka eignarhluta við ákveðna prósentu.
|
Nýju framboðin sameinist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
25.10.2011 | 17:32
Bjargað og drepið
Ekki langt síðan þessi frétt barst frá Tyrklandi: http://mbl.is/frettir/erlent/2011/10/22/tugir_fellu_i_kurdistan/
23.9.2011 | 11:42
Nú er Þorlákur þreyttur
Við sem erum afkomendur fyrri ábúenda á Skálholti og rekjum staðinn til kristinnar helgi og minnumst heilags Þorláks á vetri og sumri förum þess á leit við Kirkjuráð að skálholtskirkja verði rifin við fyrsta tækifæri svo minning þessa merka manns megi fái að blómstra frá Skálholti.
Í alvöru! hversu langt á að ganga í að hlusta á tiktúrur arkitekta og afkomenda þeirra? Þarf virkilega að rífa hús og byggja aftur til að losna undan svona skrípaleik?
|
Yfirlýsing vegna framkvæmda við Skálholt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.9.2011 | 10:50
Kalla á afsögn
Það er því algerlega vítavert þegar Alþingismenn geta ekki setið á sér og sýna virðingarleysi. Þótt ég sé hlynntur stefnu VG í mörgu þá finnst mér að Björn Valur eigi að sýna sóma sinn í því að segja af sér vegna þessa máls.
|
Talaði um „forsetaræfilinn“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
7.9.2011 | 00:13
Er ekki Reykjanesið á undan?
|
Engin augljós skýring á óróa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
5.1.2011 | 08:57
Það kemur þá í ljós
|
Hefðu viljað leikina á HM ólæsta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
17.11.2010 | 22:53
Skemmtilegar pælingar
Eftir lestur Eiríks sögu rauða hef ég verið að velta því fyrir mér hvað þeir gerðu við indíánabörnin sem þeir tóku með sér og kenndu íslensku. Þetta var að mig minnir í sömu ferð og þeir fundu einfætingalandið, þ.e. land þeirra sem eru einfættir. Ég var reyndar mjög skeptískur á þennan fund eins og gefur að skilja en eftir að ég fann greinar um ýmsa þjóðflokka indíána Norður Ameríku finnst mér eins og ég hafi fundið skýringuna á þessu. Blackfoot þjóðflokkurinn átti það til að mála fætur dýra og manna. Annan fótinn rauðan og hinn svartan. Hvernig lítur einstaklingur út í fjarlægð sem hleypur inn í skóginn málaður á þennan hátt. Ég er ekki frá því að fyrir mörgum geti hann litið út sem einfættur! :-) Blackfoot þjóðflokkurinn er frá Delaware, fyrir sunnan New Jersey en það er u.þ.b. svo langt sunnarlega sem ég hef heyrt að talið sé að leiðangrarnir frá Grænlandi voru.
Það er margt í Íslendingasögunum sem virkar við fyrstu sýn eins og algert bull en oftast á það sér eðlilegar skýringar. Ég er því á þeirri skoðun að við eigum að trúa upplýsingum um landafundi og indíána sem hafa verið fluttir til okkar heima.
|
Amerískir indíánar til Íslands árið 1000? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Sigurjón Þórðarson
eir@si
Bjarni Harðarson
ÞJÓÐARSÁLIN
Brosveitan - Pétur Reynisson
Gunnar Skúli Ármannsson
Jóhann Elíasson
Kristján Logason
Kristján Þór Gunnarsson
Landvernd
Ragnar Þór Ingólfsson

