28.11.2008 | 17:09
Hagfræði 101 - kunnáttuleysi
Enn eitt dæmið hjá stjórnvöldum sem sýnir að allt skal í þrot!
Ég hef sagt þetta einhvers staðar áður en verð nú að endurtaka.
Í Hagfræði 101 er kennt að þegar vel árar í þjóðfélagi og allt í bullandi uppsveiflu eiga stjórnvöld að halda að sér höndum. Þegar síðan illa árar og stefnir í atvinnuleysi þá Á AÐ GRÍPA INN Í. Þá eiga stjórnvöld að EYÐA því það skilar sér allt margfalt aftur í kassann. Hvetja á fólk til að eyða, alls ekki spara því þá stöðvast hjól atvinnulífsins.
Hvað gera stjórnvöld?
Í góðærinu er dælt inn peningum og búin til gjörsamlega óþörf þensla og um leið og kreppir að þá ætla þau að halda að sér höndum og draga saman í ríkisútgjöldum um 10%. Við sjáum strax áhrifin af þessari kreppu á minni tekjum í ríkissjóð. Út á gaddinn með starfsfólkið og greiðum þeim frekar atvinnuleysisbætur í stað þess að greiða þeim fyrir að vinna!!!!
Þetta er einfaldlega bara RUGL!
Kemur á versta tíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Hugsað upphátt
Bloggvinir
Myndaalbúm
Tengslasafn
Ýmislegt
-
Uppáhaldsmyndir
Uppáhalds myndirnar mínar
Flickr Uppáhald -
Náttúra
Uppáhalds náttúru myndirnar mínar
Flickr Gunnsi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Stjórnvöld hafa líka alltaf litið á sig sem fyrirtæki. Fyrirtækið sem á og rekur Ísland. það er Corporatismi.* Það hefur ekkert með rétt stundaða hagfræði að gera.
*Líka kallað Fasismi.
Ásgrímur Hartmannsson, 28.11.2008 kl. 17:32
Ég er afskaplega sammála þér þarna. Mér skildist að þetta væri bæði óumdeilt og augljóst.
Helgi Hrafn Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.