Einum of

Það er alger óþarfi að ráðast inn á Alþingi! Ef það er eitthvað sem getur hjálpað okkur úr þessum kröggum þá er það að leyfa Alþingi að starfa í friði.
Mótmælið frekar við Stjórnarráðið þar sem framkvæmdavaldið er! Það er búið að æsa þessa krakka allt of mikið upp með endalausum mótmælum og á kolvitlausum stað í þokkabót.
Munum það að þeir sem eru kosnir á þing eru þar í okkar umboði. Ef við viljum aðra þá kjósum við aðra. Allt bull um að þetta fólk sé ekki starfi sínu vaxið er auðvitað alger fásinna. Þetta er fólkið sem við treystum fyrir okkar landi og það á að fá að vinna í friði.
Í næstu kosningum munum við eflaust sjá ný andlit en þau andlit munu einnig verða dýralæknar, lögfræðingar, skjúkraþjálfar, hagfræðingar og hvað öll þessi störf nú heita í þjóðfélaginu. Það er enginn útlærður þingmaður og við verðum að átta okkur á því að þeir sem sitja þarna eru að gera sitt besta.
Fullorðið fólk á að fræða börnin sín á því svo þau læri að bera virðingu fyrir þeim sem eru að vinna fyrir þau.
Lítum okkur nær og byrjum heima hjá okkur. Byrjum á því að kenna börnunum að bera virðingu fyrir næsta nágrenni, hætta að henda rusli, fara vel með almennings eigur og vera öðrum til fyrirmyndar í orði og verki.
mbl.is Mikill viðbúnaður við þinghúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Héðinn Björnsson

Gripadeildirnar sem nú ráfa um samfélagið og stela öllum eigum íslensks almennings mun ekki verða stoppaður af því að við hættum að henda rusli. Friðsamleg mótmæli voru reynd og nú er fólk farið yfir í annars vegar ófriðsamleg mótmæli og hinsvegar vonleysi. Næsta stig verður svo annarsvegar ofbeldisfull mótmæli og hinsvegar landflótti. 

Héðinn Björnsson, 8.12.2008 kl. 16:43

2 identicon

þú talar um virðingu, þegar þú ert vanvirtur af þínum eigin stjórnvöldum, líttu þér nær, ég tek undir með því, en inntakið er annað...wake up

gunnar þór (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 17:20

3 identicon

ósammála öllu sem þú seigir nema því að auðvitað hefðu þaug átt að ráðast inn í stjórnarráðið

Bjöggi (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 17:42

4 identicon

Alveg sammála þér virðingaleysi uppsker ekkert nema meira virðingarleysi. Það á að mótmæla ástandinu en gæta að því að það sé gert á réttan hátt.

Sigrún (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Gunnar Þór Gunnarsson
Gunnar Þór Gunnarsson
SeasonTours - Árstíðaferðir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...logo722x200
  • ...logo660x200
  • ...ogo1000x300
  • SeasonTours Logo
  • ...reykjavikii

Tengslasafn

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 779

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband