2.2.2010 | 09:28
Tækni og vísindi!
Verðlaunin geymd inn í skáp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2009 | 10:05
En ef gengið styrkist?
Hefur ekki alltaf verið talað um það að bankarnir hafi farið í þrot út af því að gengið hrapaði? Hvað gerist ef gengið fer að styrkjast aftur? Erum við þá í vondum málum gagnvart þessu eða er bara allt í járnum hvað sem gerist?
Eða kemur þetta okkur bara ekkert við?
Gengið áhrifamest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2009 | 10:12
Auðvelt í byggingu
Hér er skemmtilegt myndband sem sýnir hversu auðvelt er fyrir EINN mann að byggja mannvirki eins og Stonehenge. Hvað þá ef nokkrir hefðu nú hjálpast að.Mannsheilinn hefur lítið ef nokkuð breyst undanfarin 5000 ár svo það er vel hægt að ímynda sér að menn hafi getað þetta þá rétt eins og nú.http://www.youtube.com/watch?v=lRRDzFROMx0
Stonehenge: Vísbendingar um annan drangahring | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.9.2009 | 20:05
Alrangt!
Hafa þeir tilkynnt að þeir viti ekki hvar þeir eru?
Var einhver að passa upp á þá og veit ekki hvert þeir fóru?
Enginn týndur hér frekar en á Grænlandi þar sem mér skilst að ekki sé til orð yfir það að vera týndur.
Þótt einhver sé ekki fundinn þarf það sumsé ekki að merkja að hann sé týndur.
Þessi þjóðflokkur hefur vafalaust ekki verið í sambandi við aðra á liðnum árum, allavega ekki í manna minnum en þeir eru örugglega ekki týndir frekar en restin af heimsbyggðinni.
Kannski hafa þeir orðið varir við mannaferðir og sagt sín á milli að heimurinn væri líklegast allur fullur af týndu fólki :-)
Ummerki um týndan ættbálk í Perú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.9.2009 | 13:13
"Langa" ekki í fangelsi!
Ég vil nú bara segja það að mig "langar" ekkert að hafa þá í fangelsi á Íslandi og mig "langar" til að þeir séu sendir aftur til síns heima.
Nú hefur sú saga kvisast út um allan þjófabálk og ferðast eins og eldur í sinu til Evrópu að fangelsin séu full á Íslandi og því sé ekki hægt annað en að sleppa fólki um leið og það hafi játað syndir sínar fyrir lögreglunni. Einnig er töfraorðið að manni "langi" ekki til síns heima í afplánun og þá fær viðkomandi bara að ráfa hér um og ræna og rupla þar til úr húsnæðisvanda fangelsismála rætist!
Burt með allan óþjóðalýð segi ég en á sama tíma vill ég heldur ekki fá þá heim sem hafa ætlað að smygla dópi til landsins frá Brasilíu og nágrannalöndum. Með því að hjálpa þeim heim erum við að minnka fælingarmáttinn við að smygla hingað í stórum stíl.
Tengsl milli þjófaflokkanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2009 | 12:01
Tveir reknir úr pókerklúbbnum svarta höndin
Starfsmönnum í Valhöll sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2009 | 12:20
Að skjóta flugu með fílabyssu
Erum við kannski bara að styrkja lyfjaframleiðendur.
Samskonar flensa var á áttunda áratug seinustu aldar og þá var bólusett í USA en fljótlega hætt vegna aukaverkana og jafnvel talið að fleiri hafi látist af völdum bólusetningarinnar en flensunnar.
Byrjað að bólusetja í október | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.5.2009 | 00:20
Er þetta samsæri?
Það virðist vera að það sé enn á ný verið að hygla lánveitendum á kostnað lántakenda. Áhættan skal alltaf vera okkar megin! Nú, aldrei sem fyrr er ég farinn að trúa á samæriskenningar og þessar ganga hreinlega út á það að það þarf að sýna það og sanna að Íslendingar geta ekkert haft það betra en aðrar þjóðir. Við eigum bara að halda kjafti og éta það sem úti frís og er í boði AGS.
Áfengi og eldsneyti hækka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2009 | 16:15
Skuldsetningar og styrkir
Ég var mikið að velta þessu fyrir mér um daginn þegar þessi umræða hófst. Hvort er betra að vera búinn að fá peninga frá einhverjum eða skulda þá?
Í frétt fyrr í vetur kom fram að ALLIR stjórnmálaflokkarnir væru reknir með tapi og þar var ef ég man rétt Sjálfstæðisflokkurinn í fararbroddi. Ég get ekki skilið hvernig hægt er að reka svona apparat með tapi án þess að fá lánað þegar eignirnar eru engar og þá hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að skulda mest.
Þá er það sem mér finnst skipta mestu og það er að vita hverjum flokkarnir skulda því þar gætu ítökin verið mest.
Því hvet ég til þess að láta ekki við sitja að fá upplýsingar um styrki heldur einnig lánveitendur.
Nöfn fyrirtækja ekki rædd í miðstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2009 | 16:13
Útrás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Hugsað upphátt
Bloggvinir
Myndaalbúm
Tengslasafn
Ýmislegt
-
Uppáhaldsmyndir
Uppáhalds myndirnar mínar
Flickr Uppáhald -
Náttúra
Uppáhalds náttúru myndirnar mínar
Flickr Gunnsi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar