Gengisbreytingar - ársfjórðungsuppgjör

Ég er ekki viss um að krónan sé í frjálsu falli bara vegna viðskipta fyrir utan kerfið. Það er of mikil tilviljun að mínu mati að þetta komi upp bara núna fyrir mánaðarmótin. Þessi verslun hefur verið allan tímann. Hins vegar er núna ársfjórðungsuppgjör bankanna og um leið og 1. apríl kemur upp þá styrkist gengið aftur. Þetta hefur verið svona undanfarið ár og þótt svo að bankarnir séu nú í eigu ríkisins þá þurfa þeir samt að sýna hagnað og gera það á þennan hátt. Hefur þetta alveg gleymst í umræðunni?
mbl.is Herða á gjaldeyrishöftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Held ég verði að vera þér sammála um þetta.

Sjá comment:

http://villagunn.blog.is/blog/villagunn/entry/842984/#comments

Haukur (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 12:56

2 identicon

Síðustu vikur hafa sprottið upp eins og gorkúlur

"fiskmiðlarar" sem hafa gerst milliliðir

milli útflytjenda og kaupenda þar sem samið er um

verð í krónum oftast er miðað við eurisk ábilinu

190-200. Miðlari afhendir síðan útflytjenda í krónum

fær sjálfur eur sem síðan eru seldar á erlendum markaði

fyrir 220-230. Þessi gjaldeyrir kemur aldri heim

og óhætt er að segja að um verulegar fjárhæðir er

að ræða. Þetta er skýringin á veikingu krónunnar ekki eitthvað

fix hjá bönkunum.

Brynjólfur Harald Gunnarsson (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 16:13

3 Smámynd: Gunnar Þór Gunnarsson

Takk fyrir þetta Binni!

En hvernig stendur á því að þetta er fyrst að koma upp núna og gjaldeyrishöftin hafa verið í nokkra mánuði!?

Gunnar Þór Gunnarsson, 2.4.2009 kl. 00:23

4 identicon

Erfitt að segja en helsta ástæðan er sú að fyrstu tvo mánuði ársins var verð á eurisk erlendis á bilinu 195-210 meðan verðið hér var 160-170.  Síðan styrktist krónan hér heima (aðallega vegna inngripa SÍ) og fór á tímabili undir 145 á meðan verðið erlendis fór í hina áttina þ.e. 230+.  Um ástæðu þess að þrónunin fór í sitthvora áttina get ég ekki tjáð mig en við þessar aðstæður var kominn góð gróðavon fyrir aðila sem ekki víla fyrir sér að beygja reglur aðeins sér í hag.  Í mörgum tilfellum vissi ég af útflytjendum sem hreinlega áttu erfitt með að selja vöru sína á markaði erlendis ef þeir ekki voru tilbúnir að fara þessa leið vegna þess að þeir aðilar sem notuðu þessa aðferð voru farnir að undirbjóða á markaði sem gerði þeim "heiðarlegu" erfitt fyrir.  Undirboð voru auðveld fyrir þá þar sem þeir síðan gátu selt á eurisk 220-230 og stórgrætt þó búið væri að lækka verðið í eur.  Þeir "heiðarlegu" hefðu semsagt þurft að taka á sig 5-15% lækkun í eur og komið með þær eur heim og selt á "lága" verðinu.  Alls ekki  gott.  Og þetta var komið á það stig undir það síðasta að stefndi á að allir myndu nota þessa aðferð hreinlega til að lifa af á markaði.  Því voru þessi lög á Alþingi sem sett voru í vikunni hreinlega  nauðsynleg.

Binni (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 10:28

5 Smámynd: Gunnar Þór Gunnarsson

Ber er hver að baki nema bróður eigi! :-)

Gunnar Þór Gunnarsson, 2.4.2009 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hugsað upphátt

Höfundur

Gunnar Þór Gunnarsson
Gunnar Þór Gunnarsson
SeasonTours - Árstíðaferðir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...logo722x200
  • ...logo660x200
  • ...ogo1000x300
  • SeasonTours Logo
  • ...reykjavikii

Tengslasafn

Ýmislegt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 574

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband